Fasteignasala Sauðárkróks


Fasteignasala Sauðárkróks 
Suðurgötu 3
550 Sauðákróki
Símar: 453 5900 &
864 5889
Fax 453 5931

Ágúst Guðmundsson
lögg. fasteignasali
Sölumaður:
Anna J. Hjartardóttir
Netfang: strimill@simnet.is

 

Hólavegur 42, Sauðárkróki

Þriggja herbergja íbúð, 72,2 m2 auk 6,3 m2 geymslu

Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð til vinstri í húsinu við Hólaveg 42, Sauðárkróki. Húsið er nýmálað að utan. Vestan við húsið er timburpallur með skjólgirðingum. Forstofa er teppalögð. Í íbúðinni eru tvö herbergi  með skápum og parketi og rúmgóð stofa að vestan með útgang á pall. Skápar við gang sem er parketlagður. Í eldhúsi er ljós gólfdúkur,  hvít innrétting og uppþvottavél. Á baðherbergi eru flísar á gólfi og á vegg við kar. Sérgeymsla fylgir íbúðinni í bílskúr vestan við húsið sem innangengt er í frá lóð.

Ásett verð kr. 11 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Aðalgata 3, Sauðárkróki

Parhús á tveimur hæðum

Aðalgata 3, Sauðárkróki var byggt úr timbri 1917, viðbyggt við húseignir Sauðárkróksbakaríis. Húsið var síðar múrhúðað (forskallað).  Íbúðin er 102,3 m2. Á neðri hæð er inngangur, þvottahús og herbergi. Á neðri hæð er einnig 41,4 m2 sér verslunarpláss er snýr að aðalgötunni. Á efri hæð er eldhús, stofa, tvö herbergi og baðherbergi. Með eigninni fylgir 33 m2 skúr vestan við húsið. Eignin þarfnast viðhalds.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar á söluyfirliti fasteignasölunnar.

:: meira

Jöklatún 3, Sauðárkróki

Parhús á einni hæð, 94,9 m2.

Jöklatún 3, Skr. var steypt 1992. Húsið er í nokkuð góðu ástandi að utanverðu. Vestan við húsið er timburpallur og skjólgirðing. Í íbúðinni eru þrjú herbergi, hol og eldhús, allt með eikarparketi, baðherbergi með flísum á gólfi, í sturtuklefa og á vegg við baðkar, þvotthús með dúkögðu gólfi og eldhús með ljósgrænni innréttingu. Inngangur að austan í dúklagða forstofu. Einnig gengið inn í þvottahús að norðanverðu þar sem má komast upp á háaloft.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

:: meira

Birkimelur 10, Varmahlíð

Einbýlishús á einni hæð með bílskúr, alls 190,7m2

Birkihlíð 10, Varmahlíð, einbýlishús á einni hæð, byggt 1999. Íbúðin er 156 m2 og viðbyggður bílskúr er 35 m2. Húsið er byggt úr timbri og klætt með steni. Dúklögð forstofa með spónlögðum eikarskápum. Rúmgott eldhús með stórri eikarinnréttingu, uppþvottavél og dúk á gólfi. Hvítar plasthúðaðar plötur eru í öllum loftum. Fjögur svefnherbergi með plastparketi á gólfum og skápum. Á baðherbergi eru veggir og gólf klædd dúk, þar er sturtuklefi, baðkar og hvít tæki. Útgangur frá stofu á lóð. Þvottahús með innréttingu og vaski. Lóð er ófrágengin.

Húsið er sem nýtt.

Ásett verð 27 miljónir króna.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Aðalgata 14, efri hæð, Skr.

Skrifstofuhúsnæði, 122 m2

Boðið er til sölu skrifstofuhúsnæði á efri hæð hússins við Aðalgötu 14, Sauðárkróki. Húsið er í góðu ástandi að utanverðu, þak, gluggar og gler var endurnýjað fyrir nokkrum árum  og húsið er nýlega málað. Á hæðinni eru fjögur rúmgóð herbergi með nýlegum síma- og tölvulögnum í stokkum. Að auki er minna herbergi sem nú er nýtt sem skjalageymsla, minni geymsla, eldhús og baðherbergi. Í risi er geymsla. Inngangur að norðanverðu.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsinar hjá fasteignasölu Sauðárkróks

:: meira

Raftahlíð 22, Sauðárkróki

Endaraðhús með bílskúr, 148,6 m2.

Raftahlíð 22, Skr. er steypt endaraðhús, byggt 1975. Íbúðin er 120,9 m2, bílskúr 27,7 m2.  Hitalögn í steyptu plani við bílskúr. Pallur vestan við með skjólgirðingum. Lóð í góðri rækt. Í íbúðinni er dúklögð forstofa, fjögur herbergi og stofa með parketi (dúkur á einu herbergja), eldhús með brúnni innréttingu og korkdúk á gólfi, baðherbergi sem var nýlega vandlega uppgert, flísalagt með innréttingu og hornbaðkari. Innangengt frá gangi inn í frágenginn bílskúr.

Ásett verð 22,5 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks

:: meira

Freyjugata 40, Sauðárkóki

Einbýlishús á einni hæð, 96 m2

Freyjugata 40, Skr. er steypt einbýlishús, byggt 1943. Fyrir nokkru var húsið klætt að utan með steni og einangrað. Þakjárn á að vera í lagi svo og útihurðir. Í íbúðinni er flísalögð forstofa, tvö herbergi og stofa með teppum, flísalagt baðherbergi, eldhús, þvottahús og geymsla. Lítið timburhús á lóðinni eða geymsla fylgir með.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölu Sauðárkóks

:: meira

Víðigrund 16, Sauðárkróki

4 herbergja íbúð á þriðju hæð

Rúmgóð 109,8 m2 fjögurra herbergja íbúð í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 16, Sauðárkróki. Húsið var málað að utan fyrir þremur árum. Stigagangur er snyrtilegur með ljósum gólfdúk.  Nýlegar eldvarnarhurðir eru í íbúðum við stigagang. Í íbúðinni eru þrjú dúklögð herbergi, stofa og gangur með parketi, eldhús með nýlegri innréttingu og korkflísum á gólfi og baðherbergi með hvítum tækjum og flísum á vegg við kar. Í íbúðinni er einnig þvottahús og geymsla. Skápar eru í teimur herbergjum og við gang. Sérgeymsla á jarðhæð, 5,3 m2. Íbúðin er öll í ágætu ástandi.

Ásett verð 13 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

:: meira

Brekkutún 8, Sauðárkróki

Einbýlishús á einni hæð með viðbyggðum bílskúr.

Brekkutún 8, Skr. var byggt árið 1994 úr timbri og klætt að utan með ljósu steni. Húsið er frágengið og í góðu ástandi. Timburpallur með skjólgirðingum er vestan við húsið. Í íbúðinni eru fjögur herbergi og stofa með plastparketi á gólfum. Útgangur frá stofu á pall. Í eldhúsi er nýleg innrétting úr kirsuberjaviði, uppþvottavél og parket á gólfi. Baðherbergi er allt flísalagt með kari, sturtuklefa og innréttingu. Forstofa er flísalögð með góðu skápaplássi, þaðan er innangengt í fullfrágenginn bílskúr sem er með flísalögðu gólfi, sjálvirkum hurðaopnara og innréttaðri geymslu og þvottahúsi að vestanverðu. Íbúð er 129,6 m2, bílskúr 45 m2.

Snyrtileg eign.

Ásett verð 29 miljónir króna.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Víðihlíð 8, Sauðárkróki

Einbýlishús á tveimur hæðum, 249 m2.

Víðihlíð 8, Sauðárkróki, steypt einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr á neðri hæð. Íbúðin er 184,7 m2 og bílskúr 64,7 m2. Húsið var byggt 1980. Að utan er húsið í þokkalegu ástandi. Svalir eru að austan, útgangur á þær frá eldhúsi. Timburpallur og hellulögð verönd vestan við húsið.

 Á neðri hæð eru 2 dúklögð herbergi, forstofa, hol, þvottahús, snyrting , 3 geymslur og bílskúr með rafknúnum hurðaopnara.

Á efri hæð er rúmgóð stofa með panelklæddu lofti og dúk á gólfi, 4 herbergi, öll dúklögð, þrjú þeirra með skápum, eldhús með eikarinnréttingu og gólfdúk og  baðherbergi með flísalögðum veggjum, sturtuklefa og hvítri innréttingu með beykilistum.

Óskað er eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks.

:: meira

Sumarhús í Hjaltadal

40 m2 auk 18 m2 gestahúss

Sumarhús í landi jarðarinnar Neðri-Áss í Hjaltadal. Húsið var byggt 1987 úr timbri. Gestahúsið er nýlegt. Pallur er sunnan og vestan við húsið. Trjárækt er vel veg komin á lóðinni. Gott útsýni til vesturs og suðurs. Í húsinu eru tvö herbergi, snyrting með hvítum tækjum, eldhúskrókur og stofa. Veggir eru klæddir panel.  Innbú getur fylgt með ef þess er óskað. Húsið er í nokkuð góðu ástandi.

Ásett verð kr. 6 miljónir.

Nánari upplýsingar á söluyfirliti fasteignasölunnar.

:: meira

Barmahlíð 5, Skr.

Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.

Barmahlíð 5, Sauðárkróki er steypt einbýlishús á einni hæð, byggt 1976. Bílskúr 53 m2 var byggður 1986. Húseignin er í nokkuð góðu ástandi að utan. Skjólveggir eru við húsið og hellulögð verönd sunnan við. Magnað útýni yfir Fjörðinn. Íbúðin er 141,7 m2. Inngangur að sunnanverðu í flísalagða forstofu. Hol og stofa með eikarparketi, arinn í stofu og flísar þar við. Í eldhúsi er eikarinnrétting og keramik eldavél. Fimm herbergi, þrjú þeirra eru dúklögð og tvö með parketi, skápar í herbergjum. Sjónvarpshol með parketi. Þvottahús við hlið eldhúss, þaðan útgangur til norðurs. Bílskúr er frágenginn.

Ásett verð 27 miljónir króna.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks

:: meira

Brekkutún 1, Skr.

Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.

Brekkutún 1 er steypt einbýlishús á einni hæð með bílskúr, byggt 1994. Húseignin er fullfrágengin og í góðu ástandi. Pallur er sunnan við húsið með setlaug og skjólgirðingum. Heimreið að bílskúr er hellulögð og með hitalögn. Íbúðin er 147 m2, 3 herbergi með vönduðum skápum, stofa, rúmgott hol, eldhús, búr og baðherbergi. Parket er á gólfum herbergja. Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa og kari. Í eldhúsi er gólf flísalagt, ljós innrétting með mahogney listum. Bílskúr (32 m2) er fullfrágenginn með rafknúnum hurðaopnara. Innangengt úr forstofu í bílskúr.

Vel byggt hús í góðu ástandi. Verð kr. 30 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Sæmunargata 5, 2.hæð, Skr.

Tveggja herb. 50 m2. íbúð auk geymslu.

Tveggja herbergja íbúð á annari hæð í fjölbýlishúsinu við Sæmundargötu 5, Sauðárkróki. Íbúðin er 50,1 m2, með fylgir 4,6 m2 sérgeymsla á jarðhæð og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi. Anddyri er flísalagt, parketlegt herbergi og rými þar sem er teppalögð stofa og eldhúskrókur með hvítri innréttingu með beykilistum og borðplötu. Gólf við eldhúskrókinn er flísalagt. Hvítar plötur í loftum. Snyrtileg íbúð.

Ásett verð kr. 8 000 000.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Sæmundargata 5, Skr.

Einstaklingsíbúð, 37 m2 auk geymslu.

Einstaklingsíbúð á jarðhæð í húsinu við Sæmundargötu 5, Sauðárkróki. Íbúðin er 37,6 m2. Með fylgir  4,6 m2s érgeymsla á jarðhæð og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi. Í íbúðinni er parketlagt rými þar sem er stofa með nýju parketi og eldhúskrókur með hvítri innréttingu. Baðherbergi með flísalögðu gólfi og sturtuklefa.

Ásett verð kr. 6 500 000.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Raftahlíð 7A, Sauðárkróki

Endaraðhús á einni hæð, 2 herb. 70,2 m2

Raftahlíð 7A, Sauðárkróki. Steypt endaraðhús á einni hæð, byggt 1977. Að utan er húsið í góðu ástandi. Heimreið er með hitalögn. Timburpallur með skjólveggjum vestan við húsið. Íbúðin skiptist í flísagt anddyri;  herbergi þar við með parketi; lítið eldhús með hvítri innréttingu og flísum á gólfi; stofa að vestan með parketi. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi, kari, hvítum tækjum og nýlegri loftklæðningu. Geymsla. Loft eru klædd hvítum plötum.  Skápar við gang.

Snyrtileg eign. Ásett verð 11,7 miljónir króna.

Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900

:: meira

Jöklatún 7, Sauðárkróki

Raðhús á einni hæð, 94,9 m2.

Jöklatún 7, Sauðárkróki. Steypt raðhús á einni hæð, vestan götu, byggt 1992. Húsið er í þokkalegu ástandi að utan.  Í íbúðinni eru tvö herbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Dúkar eru gólfum nema á baðherbergi. Loft eru klædd hvítum plasthúðuðum plötum. Í eldhúsi er blágræn innrétting með borðplötum úr límtré. Á baðherbergi eru flísar á gólfi, sturtuklefa og á veggjum við kar. Hvít hreinlætistæki. Útgangur frá þvottahúsi til norðurs. Geymsla á háalofti. Íbúðin er í góðu ástandi.

Ásett verð 15,5 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Víðigrund 2, jarðhæð, Skr.

2ja herb. íbúð, 59 m2 auk 7 m2 geymslu

Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 2, Sauðárkróki. Byggingarár húss var 1971. Í íbúðinni er stofa með plastparketi;  herbergi með skápum og parketi; gangur með parketi og skáp;  flísalögð snyrting með sturtuklefa og hvítum tækjum og eldhús með dúklögðu gólfi og gulri og hvítri innréttingu. Útgangur frá stofu á steypta verönd sunnan við húsið.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fateignasölunni.

:: meira

Skagfirðingabraut 37, Skr.

Efri hæð og ris ásamt bílskúr.

Efri hæð og ris í tvíbýlishúsi við Skagfirðingabraut 37, Sauðárkróki. Byggingarár 1959. Með fylgir 46,3 m2 bílskúr. Íbúðin er alls 157,5 m2. Á hæðinni eru tvö herbergi, annað með skápum, rúmgóð stofa, hol, þvottahús/geymsla, eldhús og baðherbergi. Parket er á gólfum nema á baðherbergi. Í risi eru tvö herbergi auk rýmis sem getur nýtst vel sem sjónvarpsherbergi. Í risi er parket á gólfum. Íbúðin er nýlega máluð.Stórar suðursvalir fylgja íbúðinni. Rúmgóð og björt íbúð.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölu Sauðárkróks

:: meira

Grundarstígur 24, Sauðárkróki

Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.

Grundarstígur 24, Skr. er einbýlishús á einni hæð, 133,8 m2 byggt 1969. Með fylgir bílskúr 33 m2. Nýlega var þakjárn og pappi endurnýjaður. Húsið var málað að utan 2007 og er mest allt nýlega málað að innan.  Skjólgirðing að sunnanverðu við Hegrabraut. Pallur sunnan við hús. Hellulögð heimreið að bílskúr með hitalögn. Í íbúðinni er flísalagt þvottahús, þar er ný inntaksgrind Þrjú herbergi og stofa með nýlegu parketi.  Eldhús með dökkri innréttingu í nokkuð góðu ástandi og nýlegri eldavél, korkdúkur á gólfi. Teppalögð forstofa og snyrting þar við með hvítum tækjum. Baðherbergi er uppgert með flísalögðu gólfi og sturtuklefa. Frárennsli frá baðherbergi er nýlegt. Bílskúr er frágenginn.

Snyrtileg eign. Ásett verð 24,5 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Víðigrund 26, Skr.

4 herb. íbúð, 109,8 m2 auk 4,8 m2 geymslu.

Fjögurra herbergja rúmgóð íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 26, Sauðárkróki. Byggingarár 1979. Húsið er í þokkalegu ástandi að utan. Í íbúðinni eru þrjú herbergi, öll með góðu eikarparketi og skápum, stofa og gangur með eikarparketi, eldhús með nýlegri innréttingu og tækjum, baðherbergi með gólfdúk, sturtuklefa og hvítum tækjum og innréttingu, geymsla og þvottahús. Sérgeymsla á jarðhæð fylgir með. Stórar suðursvalir sem má ganga út á frá stofu og svefnherbergi. Gott útsýni er frá íbúðinni.

Eigendur óska eftir tilboðum. Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Grenihlíð 28, 2.h., Skr.

3 ja herb. 102,2 m2 íbúð.

Þriggja herbergja íbúð á annari hæð í steyptu raðhúsi við Grenihlíð 28, Sauðárkróki. Íbúðin er alls 102,2 m2. Húsið var byggt  1989. Flísalögð forstofa. Geymsla er við anddyrið. Teppalagður stigi. Stigapallur og stofa með eikarparketi. Skápar á gangi við stofu. Tvö dúklögð herbergi með skápum. Eldhús er með parketi á gólfi og viðarinnréttingu. Geymsla er við eldhús. Á baðherbergi er dúklagt gólf, kar með sturtu í og hvít tæki. Gott útsýni er frá íbúðinni. Snyrtileg eign.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

:: meira

Hólavegur 21, Sauðárkróki

Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.

Hólavegur 21, Skr. er steypt einbýlishús á einni hæð, 117,7 m2, byggt 1960. Bílskúr 29 m2 er áfastur við húsið að norðanverðu, byggingarár 1978. Í íbúðinni eru þrjú herbergi, stofa, baðherbergi, eldhús, þvottahús og geymslur. Skápar eru í einu herbergja og á gangi.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Víðihlíð 4, Sauðárkróki

Einbýlishús á teimur hæðum með bílskúr.

Víðihlíð 4, Sauðárkróki er steypt einbýlishús á tveimur hæðum, byggt 1974.  Íbúð er alls 219 m2,  garðskáli vestan við hús með heitum potti er 24,2 m2 og bílskúr á neðri hæð er 50 m2. Húsið er nokkuð góðu ástandi að utan. Svalir og útitröppur hafa nýlega verið lagfærðar. Á efri hæð er eldhús, fjögur herbergi, stofa með arni, þvottahús og baðherbergi. Í eldhúsi er nýleg innrétting og tæki. Á gólfum eru flísar og parket. Á neðri hæð eru þrjú herbergi, eldhúskrókur, snyrting, geymsla og bílskúr með sjálfvirkum opnara og gryfju. Vestan við húsið er pallur með skjólgirðingu. 

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Skagfirðingabraut 35, jarðhæð, Skr.

3 ja herberja íbúð, 77 ,1 m2 auk geymslu

Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í húsinu við Skagfirðingabraut 35, Sauðárkróki. Húsið var steypt 1951. Íbúðin er 77,1 m2 með aðgangi að sameiginlegu þvottahúsi. Að auki er 11,3 geymsla eða herbergi á gangi. Útihurðir og gluggar eru í góðu ástandi. Flísalögð forstofa, hol með parketi, dúklagt herbergi, stofa með parketi, eldhús með flísum á gólfi og brúnni innréttingu og baðherbergi með flísalögðu gólfi, sturtuklefa og hvítum tækjum. Snyrtileg eign.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Laugatún 10, Sauðárkróki

Parhús á einni hæð, 5 herbergi, 129 m2

Laugatún 10, Sauðárkróki. Steypt parhús á einni hæð, byggt 1992. Eignin er alls 129,5 m2. Húsið er nýmálað að utan. Vestan við húsið er malbikað bílastæði og hellulögð gangstétt með hitalögn. Lóðin er í góðri rækt. Dúklagt anddyri. Parketlögð stofa. Eldhús með gulri innréttingu, beykiborðplötum, uppþvottavél og dúklögðu gólfi. Fjögur dúklögð herbergi, öll með skápum. Dúklagt þvottahús með hillum og borði. Útgangur frá þvottahúsi suður á lóð. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og veggjum við kar og sturtu, hvít tæki. Hol með gólfdúk. Eignin er í nokkuð góðu ástandi.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Raftahlíð 34, Skr.

Endaraðhús á einni hæð með bílskúr, alls 149 m2.

Raftahlíð 34, Sauðárkróki. Steypt raðhús á einni hæð, byggt 1975. Íbúðin er fimm herbergja, 120,9 m2. Bílskúr er 28 m2. Innangengt er í bílskúr frá anddyri. Húsið er í nokkuð góðu ástandi að utan. Lóð er vel gróin. Setlaug austan við húsið. Steypt plan framan við bílskúr með hitalögn. Í íbúðinni er flísalögð forstofa, hol og gangur, þrjú herbergi með parketi, stofa með panel í lofti og flísum og parketi á gólfi, eldhús með flísalögðu gólfi, innréttingu úr hnotu og nýjum tækjum, flísalagt baðherbergi með innréttingu, lítið þvottahús þar sem eru einnig lagnir fyrir snyrtingu og geymsla. Bílskúr er frágenginn með sjálfvirkum opnara.

Snyrtileg eign. Laus til afhendingar fljótlega.

Eigendur óska eftir tilboðum. Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Aðalgata 22B, Skr. Leikborg

295 m2 geymslu- eða iðnaðarhúsnæði

Aðalgata 22B, Sauðárkróki. Leikborg, núverandi æfingahúsnæði Leikfélags Sauðárkróks. Húsið er alls 295,5 m2, byggt 1911. Útveggir eru steyptir að mestu.Timburgólf á milli hæða. Á efri hæð er eitt rými, snyrting og eldhúskrókur. Á neðri hæð eru geymslur. Inngangur að austanverðu. Eignin þarfnast viðhalds.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Túnbraut 8, efri hæð, Skagaströnd.

Rúmgóð 4 herb. íbúð, 133,6 m2. Bílskúr 23,2 m2

Efri hæð hússins við Túnbraut 7, Skagaströnd. Húsið var steypt 1965. Árið 2003 var sett nýtt litað stál á þak hússins. Með íbúðinni fylgir bílskúr. Í íbúðinni er flísalögð forstofa, nýmálaður og snyrtilegur stigagangur, þvottahús, rúmgóð stofa og borðstofa með parketi, eldhús, þrjú herbergi og nýuppgert baðherbergi, flísalagt með nýrri innréttingu.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Kárastígur 9, Hofsósi.

Einbýlishús með bílskúr.

Kárastígur 9, Hofsósi er hlaðið einbýlishús á einni hæð, byggt 1958. Íbúðin er alls 132 m2. Kjallari er undir húsinu að norðanverðu. Með fylgir bílskúr, 26 m2 sem byggður var 1970. Húsið er klætt að utan með lituðu áli og var þá einangrað um leið og allir gluggar endurnýjaðir. Þakjárn er gamalt en lítur vel út. Útihurð að norðan er nýleg og einnig minni hurð á bílskúr. Í íbúðinni er dúklagt anddyri, parketlagt hol, rúmgóð teppalögð stofa, þrjú herbergi, tvö teppalögð, eitt með parketi, eldhús með korkdúk á gólfi,  blárri innréttingu og hvítum loftplötum með bitum, baðherbergi með dúk á gólfi og veggjum, hvítum tækjum og sturtu í kari. Annars eru loft í húsinu máluð. Lítil geymsla við hol.

Í bílskúr er innréttað herbergi með parketi og snyrting með flísalögðu gólfi, hvítum tækjum og sturtuklefa. Hitaveitan á leiðinni!

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.  

:: meira

Sumarhús við Einimel 2, Varmahlíð

4 hús á sameiginlegri lóð

Boðin eru til sölu fjögur sumarhús úr timbri á lóð við Einimel 2, sunnan Reykjarhóls við Varmahlíð í Skagafirði. Húsin voru byggð á árunum 2002 - 2004.

Einimelur 2A, 36,4 m2. Bjálkahús með bárujárni á þaki. Í húsinu er eitt rými með parketi á gólfi. Hvít innrétting í eldhúshorni. Loft klædd panel. Snyrting  er með parketi á gólfi, hvítum tækjum og sturtuklefa. Skápur við inngang. Rimlagardínur. Húsið stendur nyrst og vestast á lóðinni. Sérlóð 328 m2. Hlutfall 12,35%.

Einimelur 2F, 36,4 m2. Sama fyrirkomulag og í húsinu við 2A nema að auki er pallur sunnan og vestan við húsið. Lítur vel út að utan. Sérlóð 319 m2.

Einimelur 2E, stærð 44,4 m2. Húsið er hefðbundið sumarhús, klætt timbri. Bárujárn á þaki, pallur vestan við húsið. Stofa með parketi (skápur), eldhúshorn með brúnni innréttingu, snyrting með hvítum tækjum, sturtuklefa og dúk á gólfi, herbergi með parketi og skáp. Anddyri er parketlagt. 2 rúm á svefnlofti. Veggir eru klæddir panel. Sérlóð 199 m2, hlutfall 16,23%.

Einimelur 2C, 83,5 m2. Bjálkahús, brúmmálað. Neðri hæð er 56,7 m2, ris 26,8 m2. Heitur pottur á lóðinn telst séreign hússins skv. eignaskiptayfirlýsingu. Sérlóð 339 m2, hlutfall 27,92%.

Hlutfall húsann telst vera 68,85 af svæðinu. Að auki standa 2 hús á lóðinni í eigu annara.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignirnar. Tækifæri fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.

Nánari upplýsingar hjá faseignasölunni.

 

 

:: meira

Birkihlíð 10, Sauðárkróki

Einbýlishús á tveimur hæðum, alls 249 m2

Birkihlíð 10, Sauðárkróki. Einbýlishús, steypt á tveimur hæðum með bílskúr á neðri hæð. Byggingarár 1974. Húsið er í góðu ástandi almennt.  Íbúð og geymslur eru 194,3 m2, bílskúr 54,7 m2. Lóð er vel gróin, plan framan við húsið með hitalögn. Vestan við húsið er hellulögð verönd með skjólveggjum. Á efri hæð er eldhús, stofa, þrjú herbergi, þvottahús og baðherbergi. Nýlegt eikarparkert er á gólfum uppi nema á baðhebergi og herbergi við anddyri. Baðherbergi er allt flísalagt og með innréttingu. Á neðri hæð er snyrting, tvö herbergi, rúmgóður bílskúr, gluggalaust rými við skúrinn og köld geymsla. Bílskúr er frágenginn með miklu skápaplássi og sjálfvirkum hurðaopnara.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Fornós 4, Sauðárkróki

Einbýlishús á einni hæð, 4-6 herb. 108,7 m2.

Fornós 4, Sauðárkróki er einbýlishús á einni hæð, hlaðið 1971. Fyrir nokkrum árum var settur pappi á þak hússins. Vestan við er nýlegur pallur með heitum potti. Í húsinu eru fjögur herbergi og stofa. Inngangur að austan í flísalagða forstofu. Gangur og stofa með plastparketi. Parket á þremur herbergjum, dúkur á einu , skápar í tveimur. Eldhús að norðan með nýlegri innréttingu, gulri á lit með brúnum borðplötum og plastparketi á gólfi. Flísalagt þvottahús við eldhúsið og geymsla. Baðherbergi er nýlega uppgert með flísum á gólfi og vegg við sturtu, hvítum tækjum og handklæðaofni. Útgangur frá baðherbergi á pall.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Hólavegur 34, neðri hæð, Skr. 5 herb. 116 m2

4 herbergi, stofa, eldhús, þvottahús og geymsla - 116m2

Hólavegur 34, neðri hæð, Sauðárkróki. Íbúðin er alls 116,1 m2. Byggingarár 1966. Húsið hefur verið klætt að utan með stáli. Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni. Miðstöðvarlagnir og ofnar eru nýir og sömuleiðis raflagnir og rofar. Þakjárn er nýtt. Í íbúðinni er flísalagt anddyri, fjögur herbergi með parketi, þrjú þeirra með skápum, nýuppgert flísalagt baðherbergi, stofa með parketi, eldhús með viðarinnréttingu, uppþvottavél og parketi, flísalagt þvottahús og geymsla.

Ásett verð 16 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Grenihlíð 16, Skr.

Raðhús á tveimur hæðum, alls 128,7 m2

Grenihlíð 16, Sauðárkróki. Steypt raðhús á tveimur hæðum með bílskúr á neðri hæð. Byggingarár 1981. Íbúðin er 105,7 m2, bílskúr 23 m2. Framan við húsið er hellulagt plan með hitalögn. Vestan við er pallur og grasblettur. Á neðri hæð er dúklagt anddyri, hol og lítið herbergi, parketlagt. Bílskúr er frágenginn með afþiljuðu þvottahúsi og geymslu innst. Timburstigi upp. Á efri hæð eru tvö herbergi, gangur, baðherbergi og stofa. Parket er á öllum gólfum nema baðherbergis. Tvö herbergi að vestan. Útgangur frá því nyrðra út á pall og lóð. Á baðherbergi er dúklagt gólf, hvít innrétting, kar og flísar á vegg við karið. Í eldhúsi er hvít innrétting með gráum borðplötum. Frá stofu sem er að austan með ágætu útsýni, er gengið út á svalir á austurhlið. Loft á efri hæð eru klædd panel.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Barmahlíð 7, Skr.

Einbýlishús á einni hæð með bílskúr

Barmahlíð 7, Sauðárkróki. Steypt, fimm  herbergja, 145 m2 einbýlishús á einni hæð. Með fylgir tvöfaldur, 48 m2 bílskúr. Hellulagt plan með hitalögn í. Nýlegur timburpallur við húsið með vandaðri skjólgirðingu. Í íbúðinni er:  Flísalögð forstofa, stofa með parketi, fjögur herbergi með parketi (2) og gólfdúk(2), eldhús, geymsla, nýlega innréttað og flísalagt baðherbergi og þvottahús. Húsið var byggt 1978, bílskúr 1980.

Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira

Barmahlíð 9, Sauðárkróki

Einbýlishús á einni hæð með tvöf. bílskúr

Barmahlíð 9, Sauðárkróki. Steypt einbýlishús á einni hæð, 134,7 m2 að stærð. Bílskúr fylgir, 48 m2. Húsið var byggt 1976, bílskúr 1980. Húsið er allt nýmálað að utan og í góðu ástandi. Timburpallur er vestan og sunnan við  með skjólgirðingum og setlaug. Í íbúðinni eru 5 herbergi og stofa með parketi á gólfum. Skápar í tveimur herbergja og á gangi. Stofa og gangur með eikarparketi. Eldhús er flísalagt með dökkri innréttingu og nýjum tækjum. Flísalagt þvottahús, þar við eru geymslur. Anddyri með parketflísum og snyrting þar við. Baðherbergi er nýinnréttað.

Bílskúr er frágenginn með afþiljaðri geymslu.

Snyrtileg eign. Eigendur óska eftir tilboðum.

:: meira

Fornós 5, Sauðárkróki.

Einbýlishús á einni hæð, 99,8 m2, bílskúr 24 m2.

Fornós 5, Sauðárkróki, hlaðið einbýlishús á einni hæð, byggt 1967. Íbúðin er fjögurra herbergja, 99,8 m2. Viðbyggður bílskúr 24 m2. Skúrinn er ekki alveg frágenginn. Ný opin fög í gluggum og lokið er við að endurnýja hluta af gleri. Miðstöðvarlagnir og ofnar eru nýlegir og allt frárennsli er nýtt. Húsið er nýmálað. Flísalögð forstofa. Stofa og herbergi eru með parketi og hvítum plötum í lofti. Á baðherbergi er m.a.nýr sturtuklefi, hvít tæki og dúkur á veggjum. Í eldhúsi er hvít innrétting með nýlegum borðplötum. Rúmgott þvottahús með hillum og skápum.

Ásett verð 17,5 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Hvannahlíð 2, Skr.

Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.

Hvannahlíð 2, Sauðárkróki. Steypt einbýlishús á einni hæð, 140 m2 að stærð. Með eigninni fylgir 46 m2 bílskúr. Byggingarár 1980.  Að utan er húsið í góðu ástandi. Lóðin er með margvíslegum trjágróðri í góðri rækt. Inngangur að sunnanverðu, anddyrið er með flísalögðu gólfi og panel í lofti. Við innganginn er snyrting með flísalögðu gólfi, hvítum tækjum og innréttingu. Í húsinu eru fjögur parketlögð herbergi með skápum og stofa með parketi. Skápar eru á gangi. Baðherbergi er allt nýuppgert og hið vandaðasta með nuddbaðkari, sturtuklefa, innréttingu og flísalögðu gólfi og veggjum. Að norðan  er inngangur í þvottahús með flísalögðu gólfi og góðu vinnuborði með vaski í. Gott skápapláss í þvottahúsi. Eldhús er með beykiinnréttingu, hvítum plasthúðuðum skápum og beykiparketi á gólfi. Íbúðin er öll nýmáluð. Bílskúr er frágenginn nema að loftklæðningu vantar. Eign í góðu ástandi.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina. Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Víðigrund 2, Skr.

4 herb. íbúð, 99 m2 með geymslu

Víðigrund 2, Sauðárkróki. Fjögurra herbergja íbúð á annari hæð. Fjölbýlishúsið var steypt upp 1971. Íbúðin er 94,4 m2 og sérgeymsla er 4,5 m2. Flísalagt anddyri og teppalagður stigagangur. Nýleg eldvarnarhurð við gang. Rúmgott hol og stofa með gólfteppi. Gengið frá stofu út á suðursvalir. Eldhús er með dúk á gólfi og innréttingu með rennihurðum. Þrjú dúklögð herbergi, skápar í einu. Skápar á gangi. Baðherbergi er dúklagt, flísar á norðurvegg.

Ásett verð 11,3 miljónir.

Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni.

:: meira

Aðalgata 5, efri hæð, Skr.

6 herbergja íbúð auk riss, 203 m2.

Aðalgata 5, efri hæð, Sauðárkróki. Syðri hluti hússins er úr timbri, en norðurhlutinn steyptur. Inngangur að norðan í flísalagða forstofu með skápum. Teppalagður stigi upp, skápar á stigapalli. Herbergi með eikarparketi, gangur, stofa og herbergi með parketi. Arin í stofu. Útgangur frá stofu út á steypt þak með skjólgirðingum. Rúmgott eldhús með korkflísum á gólfi, eyja með eldavél og háfi, sprautaðar skápahurðir og borðplötur úr límtré. Í eldri hluta eru þrjú rúmgóð herbergi með timburgólfum og panel í loftum, skápar í tveimur herbergja. Lítil snyrting. Baðherbergi, dúklagt gólf og veggir, sturta, kar og ljós innrétting. Hringstigi upp í ris þar sem er parketlagt rými klætt panel. Húsið var svo til allt endurnýjað 1992 þ.m.t. vatns- og miðstöðvarlagnir, gólfefni, innréttingar og fl.

Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira

Smáragrund 5, e.h. Skr.

5 herb. 137 m2 íbúð.

Smáragrund 5, efri hæð, Sauðárkróki. 5 herbergja íbúð í steyptu tvíbýlishúsi sem byggt var 1959. Inngangur í flísalagt anddyri. Teppalagður stigi upp. Skápar á stigagangi. Fjögur herbergi með plastparketi. Flísalögð stofa. Flísalagt baðherbergi með innréttingu. Í eldhúsi er hvít innrétting og flísar á gólfi. Búr við eldhús. Þvottahús og geymsla inn af. Flísalagður rúmgóður gangur. Litlar suðursvalir við stofu.

Ásett verð 14 500 000.

Nánari upplýsingar á söluyfirliti fasteignasölunnar.

:: meira

Skólastígur 1, efri hæð, Skr.

5 herb., þv.hús og geymsla, alls 147 m2

Skólastígur 1, efri hæð, Sauðárkróki. Efri hæð í steyptu tvíbýlishúsi sem klætt var með stáli að utan fyrir u.þ.b. 14 árum. Þá var þakstál einnig endurnýjað. Inngangur að sunnan. Þar við er rúmgott þvottahús og geymsla. Útgangur úr þvottahúsi norður til lóðar. Nýtt teppi á stiga. Fjögur svefnherbergi  með nýjum loftplötum og plastparketi á gólfum. Nýjar innihurðir eru í íbúðinni. Hol og stigagangur með eikarparketi. Stofa að sunnan með eikarparketi. Suðursvalir. Eldhús með hvítri innréttingu og parketi.

Ásett verð 16,5 miljónir.

Nánari upplýsingar á söluyfirliti fasteignasölunnar.

:: meira

Sæmundargata 7a, Skr.

Skrifstofuhúsnæði og fundarsalir, alls 266 m2.

Sæmundargata 7a, Sauðárkróki. Steypt hús á tveimur hæðum. Húsið þarfnast viðhalds að utan.Á neðri hæð eru skrifstofur, eldhúskrókur og geymslur. Á efri hæð er rúmgóður parketlagður fundarsalur, vel búið eldhús, snyrtingar, minni fundarsalur og tvö teppalögð herbergi. Teppalagður stigi á milli hæða.

Eigendur óska eftir tilboðum í eignina.

Nánari upplýsingar á söluyfirliti fasteignasölunnar.

:: meira

Hólavegur 38, n.h. Skr.

4 herb. 123 m2 íbuð í tvíbýlishúsi. Bílskúr 42 m2.

Hólavegur 38, neðri hæð, Sauðárkróki. Húsið var klætt að utan með áli fyrir rúmum 20 árum og þá einangrað um leið með steinull. Árið 2004 var sett nýtt þakjárn. Fjögurra herbergja íbúð. Inngangur frá Hólavegi. Forstofa, hol, gangur og rúmgóð stofa með plastparketi á gólfum. Þrjú herbergi, öll með skápum, tvö þeirra með plastparketi, eitt með gólfdúk. Skápar við gang. Baðherbergi við enda gangs með flísalögðu gólfi og sturtuklefa. Inngangur að norðan um þvottahús. Þar við er eldhús og geymsla inn af því með innréttingu. Gengið frá stofu út á nýlegan timburpall. Bílskúr norðan og vestan við húsið. Gróðurhús á lóðinni.

Óskað eftir tilboðum.

Nánari upplýsingar á söluyfirliti fasteignasölunnar.

:: meira

Aðalgata 20, Skr.

Einbýlishús, 512 m2.

Aðalgata 20, Sauðárkróki, Briemshús, er múrhúðað timburhús, tvær hæðir, ris og kjallari. Á þaki er nýlegt járn og lokið er við að endurnyja hluta af gluggum. Ris (55,9 m2) er óinnréttað, en með góðri lofthæð sem býður upp á mikla möguleika. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, rúmgóð stofa, eldhús og baðherbergi. Inngangur að norðan og austan. Á neðri hæð er verslunarpláss (130 m2) að vestanverðu við Aðalgötuna í nokkuð góðu ástandi. Á hæðinni eru tvö herbergi að vestanverðu og snyrting. Íbúð er 192 m2. Kjallari er undir öllu húsinu með góðri lofthæð sem má vel nýta sem vinnuaðstöðu. Vatnslagnir á milli hæða og frárennslislagnir eru nýlegar.

Óskað er eftir tilboðum í eignina. Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira

Hólavegur 27, Skr.

Einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr.

Hólavegur 27, Sauðárkróki. Einbýlishús á tveimur hæðum,  232,2 m2. Bílskúr viðbyggður norðan við, 33,6 m2. Innangengt úr þvottahúsi í bílskúr. Húsið er hlaðið og steypt, byggingarár 1958. Lóð vestan við húsið í góðri rækt. Á neðri hæð er flísalögð forstofa, stofa og borðstofa með plastparketi, hol og 2 herbergi með plastparketi og eitt með gólfdúk, eldhús með nýlegri innréttingu úr rauðum eikarspóni og nýjum tækjum,  snyrting og þvottahús. Parketlagður stigi upp. Á efri hæð er hol og rými þar við auk þriggja rúmgóðra herbergja með plastparketi.  Flísalögð snyrting með sturtuklefa. Nýlegt gler í gluggum. Miðstöðvarofnar nýlegir.

Óskað eftir tilboðum. Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira

Aðalgata 10B, Skr.

4 herb. 88 fm íbúð á þriðju hæð.

Aðalgata 10B, Skr. Fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð. Uppgangur um stigagang frá Aöalgötu. Stiginn er dúklagður við aðra og þriðju hæð. Forstofa með flísalögðu gólfi og skápum. Þrjú herbergi með parketi. Gangur og stofa einnig með parketi. Bað er með dúklögðu gólfi og veggjum, þar er sturtuklefi og aðstaða fyrir þvottavél. Snyrting er í sérherbergi. Eldhús er með parketi á gólfi og hvítri innréttingu með borðplötum úr límtré. Uppþvottavél fylgir. Gott útsýni úr eldhúsglugga til austurs. Íbúðin er snyrtileg og í góðu ástandi. Verð 7,5 miljónir.

Nánari upplýsingar á fasteignasölunni.

:: meira
 

© HINIR SÖMU SF. SKAGAFJÖRÐUR.COM ER KEYRÐUR Á SMALA xL 2