|
Fréttir | 03. júlí 2009 - kl. 16:10 43 tonn af byggðakvóta í Skagafjörðinn Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur sent Sveitarfélaginu Skagafirði bréf þar sem tilkynnt er um afgreiðslu umsóknar um úthlutun byggðakvóta. Er úthlutunin til Skagafjarðar í tvennu lagi en annars vegar hlýtur Sveitarfélagið Skagafjörður 19 þorskígildistonn og hins vegar fær Hofsós sem nemur 24 þorskígildistonnum. Meira |
|
 |
| Ungir golfarar á Hlíðarenda. | Íþróttir | 03. júlí 2009 - kl. 14:05 Nýprent open mótið á sunnudaginn Barna og unglingamótið Nýprent open verður haldið á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki sunnudaginn 5.júlí næstkomandi. Mótið er hluti af Norðurlandsmótaröð og er annað mótið í röðinni þetta sumarið. Keppt verður í byrjendaflokkum, 11 ára og yngri, 12-13 ára og 14-16 ára. Meira |
|
 |
| Styttan flutt á áningarstaðinn. | Fréttir | 03. júlí 2009 - kl. 10:16 Styttunni af ferjumanninum komið á sinn stað Afhjúpun á sunnudaginn kl. 13:30 Styttan af Ferjumanninum Jóni Ósmann verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn á áningarstaðnum við Vesturós Hérðasvatna sunnudaginn 5. júlí kl. 13:30. Styttunni kom Baldur múrari fyrir á stalli sínum í gær. Meira |
|
 |
| Þórðarhöfði í nýju ljósi. | Fréttir | 03. júlí 2009 - kl. 09:20 Fata Morgana skemmtir á Skagafirði Blessunin hún Fata Morgana var við leik og störf á Skagafirði í hitanum í fyrradag. Margir kannast við hana Fötu úr Tinna-bókunum þar sem þeir leynilögreglubræður Skafti og Skapti urðu oftar en ekki fyrir barðinu á henni, sérstaklega þó í ferðalögum um Sahara. Meira |
|
Íþróttir | 03. júlí 2009 - kl. 08:47 Stólarnir springa enn á elleftu stundu KS/Leiftur 3 - Tindastóll 2 Tindastóll tapaði í gærkvöldi gegn KS/Leiftri en leikið var á Siglufirði. Eftir að Stólarnir komust tveimur mörkum yfir náðu heimamenn að jafna fyrir hlé. Sigurmarkið gerði KS/Leiftur úr vítaspyrnu þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur 3-2. Meira |
Fréttir | 03. júlí 2009 - kl. 08:32 Sveitarfélagið Skagafjörður eykur tekjurnar Rúv.is segir frá því að heildartekjur norðlenskra sveitarfélaga voru að raungildi liðlega 200 milljónum króna minni fyrstu fimm mánuði ársins, miðað við sama tímabil í fyrra. Tekjur Skagafjarðar jukust hins vegar um 16 milljónir króna að raunvirði á þessum tíma. Meira |
Fréttir | 03. júlí 2009 - kl. 08:00 Miljónasta plantan á Silfrastöðum Í skógræktinni á Silfrastöðum var fimmtudaginn 25. júní gróðursett milljónasta plantan. Þau Jóhannes Jóhannsson og Þóra Jóhannesdóttir hafa stundað skógrækt frá árinu 1991 og voru því byrjuð að gróðursetja í verkefninu Nytjaskógrækt á bújörðum áður en Norðurlandsskógar voru stofnaðir árið 2000. Meira |
 |
| Úr leik Tindastóls/Neista gegn FH fyrr í sumar. | Íþróttir | 02. júlí 2009 - kl. 10:02 Haukastelpur of sterkar fyrir Stólana/Neista Sameiginlegt lið Tindastóls/Neista í 1. deild kvenna fór ekki neina sigurreisu í Hafnarfjörðinn í gær en þar mættu stelpurnar toppliði Hauka og mátti þola skell. Heimastelpur í Haukum gerðu átta mörk en Skagfirðingarnir létu duga að gera eitt. Meira |
 |
| Það var stillt og 19 stiga hiti í Óslandshlíðinni seinni partinn í gær. | Fréttir | 02. júlí 2009 - kl. 09:43 Blíðuveður í Skagafirði Nítján stiga hiti og hægur sunnan vindur var á Sauðárkróksflugvelli klukkan 9 í morgun og gerir Veðurstofan ráð fyrir fínu veðri í Skagafirði í dag og á morgun. Á laugardag er gert ráð fyrir rigningu um mest allt land en áfram verður hlýtt. Meira |
Fréttir | 02. júlí 2009 - kl. 09:42 Frumkvöðlamennt og lýðræði í skólastarfi Rita Didriksen, kennari við Grunnskólann austan Vatna, hefur fengið Evrópustyrk til að taka þátt í viku námsheimsókn til Svíþjóðar næsta vetur. Heimsóknin er til Hallands sem hefur eflingu frumkvöðlastarfs sem eitt þriggja markmiða sinna til að efla sveitarfélagið. Meira |
Fréttir | 02. júlí 2009 - kl. 09:21 Ofurlitlar duggur sigla um Suðurgarðsvíkina Siglingaklúbburinn Drangey stendur fyrir siglinganámskeiðum í sumar. Þegar Sk.com átti leið í bæinn í gærmorgun í blíðskaparveðri voru siglingakempur að gera sig klárar. Þá voru einnig krakkar í Sumar TÍM við leik í fjörunni í víkinni við Suðurgarðinn sem hefur heldur betur slegið í gegn í sumar. Meira |
Fréttir | 01. júlí 2009 - kl. 14:38 Almenningi væntanlega gert að flokka sorp frá næstu áramótum Feykir.is greinir frá því að frá og með næstu áramótum er stefnt að því að rekstraraðilum í Skagafirði verði gert að greiða fyrir móttöku alls úrgangs að undanskildum þeim úrgangsflokkum sem bera úrvinnslu- eða skilagjald. Meira |